Vertu á verði gegn misnotkun og svindli
Vertu á varðbergi gagnvart heimsóknum eða tenglum frá fólki sem segist vera starfsmenn Google sem bjóða upp á ýmsa aðstoð og mynda- eða gagnauppfærslur af hvaða tagi sem er. Við ítrekum að þessi fyrirtæki hafa ekki heimild til að tala fyrir hönd Google og verða að kynna sig sem sjálfstæða verktaka.
Við mælum sterklega með því að þú gefir slíkum sambandstilraunum fyrir hönd Google engan gaum, sama hvaða ástæður kunna að liggja þar að baki, t.d. þær sem nefndar eru hér að neðan:
- Tilboð um þjónustu/þjálfun fyrir hönd Google í mælingar, stafræna miðla, tilkynningar um stafrænar nýjungar/nýja stafræna verkvanga og nýjar viðskiptastefnur, s.s. efnisráðgjöf o.s.frv.
- Loforð sem samræmast ekki venjulegri starfsemi hjá Google-þjónustum, eins og að tryggja áberandi auglýsingadálk í Google Street View eða Google-kortum og Leit;
- Þrýstingur á samningsaðila með sífelldum símhringingum eða hótunum um að fjarlægja efni af verkvöngum Google.
Það er mikilvægt að vita að Google ræður ekki ljósmyndara eða umboðsskrifstofur. Þetta er sjálfstætt starfandi fagfólk og allir samningar eru gerðir án aðkomu Google.
Okkur er mjög annt um öryggi notenda. Þess vegna takmörkum við notkun á vörumerkjum og verkvöngum Google. Enginn aðili hefur heimild til að:
- Nota vörumerki Google, t.d. Street View-táknið, innsigli og/eða lógó á fyrirtækjaökutækjum;
- Nota vörumerki Google, Google-kort og Street View, eða önnur Google vörumerki eða viðlíka, í lénsheiti;
- Nota vörumerki Google, Google-kort og Street View, eða önnur Google vörumerki eða viðlíka á fatnað, (t.d. einkennisbúninga);
- Nota Google, Google-kort og Street View-vörumerkin, eða nokkur önnur Google-vörumerki eða viðlíka, á sínum eigin Google-fyrirtækjaprófíl;
- Nota nein vörumerki Google á þann hátt að það gefi í skyn að Google mæli með tiltekinni vöru eða þjónustu.